Leikstjóri: Alan Smithee & Joe Chappelle.
Leikarar: Bruce Ramsay, Valentina Vargas, Doug Bradley…etc.
Special FX: ????

Nú erum við farin að rekja sögu kassans og alls þess brjálæðis. Þessi mynd er bara um sögu kassans útí gegn en hefur sitt skemmtilega plot líka. Ein sérstök fjölskyldan hefur hæfileika til að smíða og hann alls konar “leikföng”. Þetta byrjar snemma á Endurreisnartímabliniu þar sem að maður nokkur smíðar kassan fyrir ríkan mann sem að vill svo skemmtilega til að er djöfladýrkandi og galdramaður. Galdramaðurinn gerir svo kassan að því sem hann er en verður smiðurinn óvart vitni af því og sver hann þá að reyna að losa heiminn við þetta tól. Löngu seinna er sonarsonar…etc. sonur hans að reyna að rannsaka kassan. En þá kemst Pinhead í spilið og hann er hress eins og alltaf.

Við höfum aldrei verið það heppin að fá þessa mynd til landsins en ég hef séð hana einhverntíman til sölu í Videohöllini og mæli ég með að fólk nái sér í þessa, hún er ágæt.

***