Satt best að segja bjóst ég ekki við miklu af þessari mynd. Reyndar bjóst ég svosem ekki við neinu. Ég fór bara til að sjá Jennifer Lopez. Myndin var þó mun betri en ég bjóst við og náði alveg að skriðlast uppfyrir meðalmynd.
Hún fjallar um enn einn geðveika morðingjann sem er með mjög sjaldgæfa tegund af geðklofa. Hann varð fyrir áfalli í æsku og pabbi hans barði hann eins og harðfisk. Ekkert nýtt þar.
Það er þó athyglisvert að sjá þegar ultrabeibið Jennifer Lopez skreppur inn í hausinn á honum til að finna síðasta fórnarlamb hans sem er lifandi en dauðvona og falin. Það er gaman að sjá mismundi persónuleika hans skiptast á að hafa samband við Jennifer með mismunandi tilgang í huga, þó engann veginn séu farnar ótroðnar slóðir þar.
Myndin er öll mjög flott og fær ýmindunaraflið greininlega svolítið að ráða ferðinni, enda kemur það allt vel út.
Sagan á það til að vera örlítið óeðlileg á köflum og er stundum hálf-ósmekklegt hvernig þeir reyna að laga það.
Ekki mynd fyrir viðkvæma, svo mikið er víst.
Í heildina myndi ég segja tvær stjörnur af fjórum.
kv.