Clint Eastwood hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér og þess vegna hlakkaði ég til að sjá nýjustu mynd hans, Space Cowboys. Gaman var að sjá alla þessa skemmtilegu leikara í sömu myndinni, Eastwood, Tommy Lee Jones, Donald Sutherland og James Garner. Myndin byrjaði vel og var frekar fyndin framan af en því miður dalaði hún undir lokin og kenni ég slöku handriti um. Sagan var oft fyrirsjáanleg og ýmislegt var ansi langsótt. Það er t.d. leiðinlegt þegar karakterum er bætt inn í handrit til að búa til vandamál fyrir hetjurnar án þess að karakterinn hafi rökrétta ástæðu til að haga sér eins og hann gerir. Mér leiddist svo sem aldrei á myndinni en get ekki sagt að þetta sé meira en meðalmynd. Því miður.