Margir eru að spá í, hvað hefur gerst í lífi kvikmyndaáhugamannsins SBS og hvar hann fékk þennan áhuga. Þessi grein er sönn í alla staði, það segja allavega heimildirnar okkar(Liar’s Gossip) og fleiri traustverðug tímarit.
Móðir SBS heitir EMH og faðir hans SÞA og á hann eldri systur sem heitir GS og er hún talin skrítin(ætli það tengist nafninu hennar?). SBS fæddist í Landspítalanum og var það mjög skrítið atvik þar sem myndbandsspóla með The Shawshank Redemption fannst líka í móður hans. Þau voru kærð fyrir að greiða ekki STEF-gjöldin af myndbandsspólunni og varð SBS því yngsti lögbrjótur mannkynssögunnar.
Þegar SBS varð 6 ára var hann búinn að klára fyrstu Stephen King bókina. Hann fékk það metið og þurfti því ekki að fara í skóla fyrr en í 6. bekk. Þeim tíma eyddi hann í að lesa fleiri Stephen King bækur. Menntamálaráðuneytið ákvað að stofna sér deild við Háskóla Íslands og vann þar SBS inn 3 BA gráður í Stephen King-fræðum. SBS var búinn að lesa allar bækurnar eftir hann Stephen King og ákvað að stytta tímann á milli bóka með því að fara í framhaldsskóla og þar er hann einmitt núna.