Ég fór á forsýningu á þessari mynd en hún var frumsýnd þann 15. mars og ég skal lofa ykkur því að hún verði komin úr bíó svona 10 dögum eftir frumsýninguna. Ástæðan er sú að þetta er fuckin ömurleg mynd! Ég gaf henni sjéns en hún er bara ömurleg, söguþráðurinn er hörmulegur og einnig leikstjórnin. Leikarar myndarinnar eru flestir svona B-mynda leikarar nema kannski Shannon Elizabeth sem leikur heimska ljósku og er óhætt að fullyrða að þetta eru hennar stærstu mistök á ferlinum að leika í þessari skítamynd. Það er óhætt að nota stóru lýsingarorðin eins og sagt er þegar maður er að lýsa þessari mynd. Ég nenni ekki að segja ykkur frá söguþræðinum því mig langar helst til að gleyma honum! Nú eiga orð eins og !!HÖRMULEG, VONLAUS, MISHEPPNUÐ, ÖMURLEG, LÉLEG, HEIMSKULEG!!, og þess háttar við. Einnig er hún mjög illa gerð og eru svona villur í henni sem þið vitið að geta ekki staðist, líkt og t.d. maður fer úr jakka og skilur hann eftir svo í næst atriði þegar maðurinn er drepinn þá er hann í jakkanum…. Skilaboð mín eru einföld:
Ekki fara á þessa mynd!
Þessi mynd er núna lélegasta mynd sem ég hef séð en sú sem var áður var Battlefield Earth en hún er frábær miðað við þessa !