Og fjörið heldur áfram.

Þessi er ný og var framleidd 2001 og auðvitað í Japan :)

Í þessari fær maður að vita hvernig Sadako var og afhverju.
Eftir að móðir hennar fyrirfór sér, kom faðir hennar og fór
með hana frá eyjunni. Hún fór í skóla og leiklistardrama klúbb.
Þar er mikiðaf spúkí hlutum sem mig langar að segja frá en
auðvitað eigið þið ekkert að vita neitt, bara horfa á myndirnar
og dæma sjálf.


Áður en ég horfði á þessa var ég hrædd um að það væri sýnt
of mikið og það myndi eyðileggja karakterinn.
Ég bjóst alls ekki við útkomuna og trúið mér, hún eyðileggur
ekkert.

Takk fyrir og skemmtið ykkur
clara