Jamm, beint framhald af fyrstu myndinni og ekki þetta týpíska
“Sadako snýr aftur”. Þessi er miklu ógeðslegri og fleiri freaky
atriði. Í þessari fær maður að vita miklu meira um mömmuna
og Tomoko (sem var í byrjuninni á þeirri fyrstu).


Þessi var framleidd 1998 þannig að Ring 1 var vitlaust ármerkt
hjá mér í síðustu grein/kork. Fyrirgefið það.


En þessi mynd er um son Takashi, Yoichi, en hann er eltur af
Sadako. Ókei, bara svo þið vitið þá er Sadako stelpa sem var
barin og hent ofan í brunn. 30 árum seinna er fundið hana og
Dr.Heihachiro Ikuma á að sjá um að jarða hana.


Mér fannst þessi aðeins betri og meira í henni en í fyrstu
myndinni. Þar er miklu meira að ske og meira sýnt af Sadako


Þessar myndir eru til í Laugarásvídeo.
Takk
clara