Dead Man on Campus Ég sá þessa mynd fyrir svoldlu síðan og mynti að hún væri mjög góð þannig að ég ákvað að líta á hana aftur.

Þessi mynd fjallar um Josh sem er á nemendastyrk í Háskóla og herbergisfélaga hans Cooper. Josh lærir mikið vegna styrksins en Cooper er algjört partý-dýr og á endanum fær hann Josh til að byrja að partý-a og á endanum eru þeir báðir komnir á það stig að þeir eru við að falla. Eina leið þeirra til að ná öllum prófunum er að herbergisfélagi þeirra fremji sjálfsmorð. Eina sem er að er það að þeir hafa engan herbergisfélaga og þurfa því að reyna að finna einhvern sem hefur sjálfmorðshvöt til að flytja inn.

Mér fannst þessi mynd nokkuð góð. Hún er ekkert snilldarverk en samt mjög fyndin. Það er alltaf gaman að sjá vel heppnaða unglinga-mynd þegar verið er að fjöldaframleiða drasl í þessum geira. Í þessari mynd eru margir skemmtilegir karakterar sem gera þessa mynd mjög skemmtilega. Ég myndi gefa henni ***af**** miðað við að þettað er unglinga-mynd.

Freddie