Kínversk mynd frá 2001. Mér fannst rosalegur japanskur stíll á henni.
Myndin er um fyrrverandi fótboltaþjálfara sem rekst á mjög sérstakan dreng einn daginn. Svo kemst hann að því að strákurinn er með súpersterka fætur (og þá er ég að meina SÚPER sterka) og þeir ákveða að búa til fótboltalið ásamt bræðrum stráksins.
Þetta er frábær skemmtun og eina íþróttamyndi sem ég hef virkilega orðið spennt fyrir og haldið út alla myndina (sem ég bjóst ekki við)

Ég er samt ekki alveg viss hvort “byrjendur” ættu að byrja á þessari. Að horfa á mynd með allt öðru tungumáli getur verið ansi þreytandi og ég hef gefist upp á nokkrum myndum sjálf, bara út af tungumálinu.

Þesssi mynd er sýra á sumum pörtum en annars er þetta mjög góð grínmynd. Myndatakan er mjög sérstök og það hefur greinilega farið mikill peningur í tæknibrellurnar. Mér datt í hug Matrix í mörgum hlutum í myndinni.
Þetta er mynd sem fær fjórar stjörnur hjá mér og endilega drífið ykkur í að kíkja á hana. Ég veit að hún er til í Nexus.


clara.