Monty Python´s Meaning of Life- - -  Snilld!!! Monty Python gengið er eflaust það gríngengi
sem fagnað hefur mestum vinsældum, aðallega
í evrópu en einnig í öðrum heimsálfum.
Gengið skipa:
John Cleese,
Eric Idle,
Michael Palin,
Terry Jones,
Terry Gilliam
og Graham Chapman.
_______________________________________________
Þessir kappar kynntust flestir í Cambridge
háskólanum og ekki leið á löngu þar til þeir
voru farnir að skrifa og semja sjónvarps-
þætti. Stuttu seinna tóku þeir upp nafnið
Monty Python´s Flying Circus, og svo komu kvik-
myndirnar þeirra,

Monty Python and the Holy Grail, (fjallar um
Arthur konung og riddara hringborðsins)

Monty Python´s Life of Brian (Fjallar um strák
sem fæddist hliðina á Jesú og allir héldu
að hann væri Jesú)

og Monty Python´s Meaning of Life ( sem ég ætla
að segja ykkur frá núna)

Þær eru hver annarri betri!!!

En núna ætla ég bara að fjalla um Meaning of Life.

Þessari mynd er skipt í nokkra kafla, ég man
ekki alla eins og er, en það er a.m.k. “The
Miracle of Birth I og II”, “Growth and Learning”,
“Fighting Each Other”, “The Middle of the
film”, “Middle Age”, “Life Organ Transplants”,
“The Autumn Years”, “The Meaning of Life” og “Death”.

Hver kafli er sjálfstæð eining og segir frá
mismunandi æviskeiðum og inn á milli er líka
bara eitthvað bull!

Meðal annars í kaflanum “Middle
of the Film” þar er sýndur kafli úr >>annarri mynd<<
sem heitir Find the Fish!!! Þetta er þvílíkt bull
og þeir gera það á svo fyndinn hátt að maður liggur
bókstaflega á gólfinu í krampa.

Svo er líka mjög sniðugt í kaflanum
“Miracle of Birth”, en þá er kona að eignast
barn og læknarnir eru bara þarna nokkurn veginn
upp á djókið! Þeir eru með “The machine that
goes PING” og “The Most Expensive machine in
the whole Hospital” og halda að það skipti
einhverju máli!! Svo þegar barnið er fætt
hrista þeir barnið fyrir framan mömmuna
og henda því svo í hitakassa!!! Mamman spyr; Is it
a Boy or a Girl? og þá segir annar læknirinn: “Isn´t
it too early to start imposing roles on it right
now!” BARA SNILLD
__________________________________________________
Monty Python er alltaf að reyna að gera grín að
öllu og þeim tekst það Furðu vel!! Þeir ná alltaf
að kitla hjá manni hláturstaugarnar!

Ég mæli eindregið með því að þið sjáið þessa mynd
og í raun allar myndir Gengisins!

Kv.
umsalin