Plan 9 From Outer Space Hér er á ferðinni ein vinsælast og frægasta mynd Ed Wood.

Þessi mynd hefur allt sem þarf til að gera cult meistaraverk.

“Fræga” leikara þau Vampira, Gregory Wolcott, Tor Johnson, Conrad Brooks, Paul Marco, Norma McCarty Wood og næstu því Bela Lugosi, ekki svo tækilegar brellur og ótrúlegt handrit(í orðsins fyllstu merkingu).

Þetta er óhemju skemmtileg mynd. Hún fjallar um mann sem missir konuna sína, lendir síðan í bílslysi og deyr sjálfur. Síðan er hann og konan vakin aftur til lífsins af geimverum sem eru að ráðast á jörðina(greinilega í níunda skiptið víst þettað er Plan 9). Síðan eru þau að hrella jarðar búa í “hjól koppa” geimskipum sínu. Spurninginn er bara sú, ná þau því í þettað sinn?

Að mínum mati alveg frábær skemmtun, ég hló mig alveg mátlausan þegar ég sá hana fyrst og hef en gaman af henni núna. Ég ætla ekki að dæma þessa mynd á nein hátt því að ég tel það bara ekki vera hægt.

Freddie