Brilliant mynd sem því miður kom ekki í bíó. Flottur söguþráður og góðir leikarar. Aðalhlutverk : Willeam Dafoe, Sean Patrik Flanery, Norman Reedus og David Della Rocco. Írsk mynd (held ég), ekkert svo gömul.

Myndin er um tvíburabræður sem eru mjög trúaðir og lenda í því að myrða óvart tvo risamenn úr Rússnesku mafíunni. Þeir bræðurnir ákveða að myrða alla vondu gaurana, semsagt fara út að drepa fólk. Vinur þeirra slæst með og lögregla alltaf einu skrefi á eftir.

Okkur persónulega finnst rannsóknarlöggan sem er á eftir þeim, brilliant persónukarakter. Þessi mynd er bara þannig að maður verður að sjá hana.

Við bendum ykkur að kíkja á hana næst þegar þið hafið ekkert að horfa á.
Skemmtið ykkur..

… Clara og DoUrden.