Braindead Titill:Braindead a.k.a Dead Alive
Framleiðsluár:1992
Leikstjóri:Peter Jackson
Aðalleikarar:Timothy Balme, Diana Penalver, Elizabeth Moody
Lengd:ca. 100min
Genre:Comedy, Horror
Tagline:There's something nasty in Lionel's cellar - His family!

BRAINDEAD

Loksins, loksins er ég búinn að sjá þessa. Loksins, loksins leigði ég mynd í Laugarásvideo. Ég varð þó fyrir smá vonbrigðum með hana í byrjun, en eftir að hafa séð hana alla, wow! Þessi mynd er ekki fyrir fólk sem er viðkvæmt fyrir splatter. Þessi mynd er eitt mesta blóðbað kvikmyndasögunnar. Ég trúði varla því sem ég sá.

Í stuttu máli fjallar Braindead ( einnig þekkt sem Dead Alive ) um gaur að nafni Lionel Cosgrove sem býr hjá hálf geðveikri móður sinni. Lionel hittir konu drauma sinna og fer með henni í dýragarð. En það er eitthvað sem eltir þau, eitthvað sem fylgist með hverri hreyfingu þeirra, eitthvað sem vill ekki að þau nái saman…MAMMAN!!!!! Á meðan Lionel og vinkona hans eru að gerast nokkuð náin í dýragarðinum njósnar mamma Lionel´s um þau, en á meðan hún felur sig í runna bítur rottuapi hana. Smám saman byrjar mamman að breytast í the living dead. Og eftir skamma stund byrjar hún að bíta fólk sem auðvitað breytist einnig í the living dead! Og eftir skamma stund þarf hann Lionel að berjast fyrir lífi sínu gegn troðfullu húsi af zombíum.

Þessi mynd er blóðug. Ég er ekki að tala um eitthvað smá blóð, ekki eitthverjar smá slettur. Jafnvel mér kom á óvart hvað mikið blóð var í þessari. Treystið mér, þessi mynd er gróflega BLÓÐUG!

Myndin er hörmulega illa leikin af öllum karakterunum, handritið er eitthvert mesta rugl sem hefur verið skrifað og atriðin í myndinni eru svo mikið búllsjitt að ég veit ekki einu sinni hvað! En sama hvaða galla þessi mynd hefur mun hún alltaf vera algjör snilld. Það er sama hvert er litið, blóð, blóð, prestur sem drepur fólk fyrir guð, blóð, slátturvel ( frekar sláturvél ), blóð, blóð, blóð, blóð, lítill zombí krakki sem drepur allt í kringum sig, blóð, blóð, blóð, ROTTUAPI, zombíar sem sunda kynlíf við hvort annað í miðju atriði þar sem fólki er slátrað með garðslátturvél, eyru detta af fólki á meðan þau borða, hjúkrunarkona með haus sem varla hangir á henni, blóð, blóð og aftur blóð, þessi mun alltaf vera algjör snilld. Já góðir hálsar þetta er eitthver sjúkasta ( og fyndnasta ) mynd allra tíma. Leigið þessa og skemmtið ykkur vel!

***1/2 /****

Aðrar myndir eftir Peter Jackson

Bad Taste ***1/2 /****
Meet the Feebles ***/****
Heavenly Creatures ****/****
The Frighteners ***/****
The Lord of the Rings:The Fellowship of the Ring ****/****

Smokey…