Titill: Spy Game
Ár: 2001
Leikstjóri: Tony Scott
Handrit: Michael Frost Beckner
Framleiðslufyrirtæki: Beacon og Universal
Lengd: 126 mínútur
Hlutverk:
Robert Redford…Nathan Muir
Brad Pitt…Tom Bishop
Catherine McCormack…Elizabeth Hadley
Einkunn á imdb.com: 7,2/10

Leikstjórinn Tony Scott er bróðir Ridleys Scott sem m.a. hefur leikstýrt Alien, Gladiator, Black Hawk Down, Hannibal, Blade Runner og G.I. Jane. Tony Scott hefur sjálfur leikstýrt myndum á borð við Top Gun, Beverly Hills Cop 3, Days of Thunder, Crimson Tide, The Fan og Enemy of the State.

Ég fór í gærkvöldi að sjá nýjustu mynd Brads Pitt og Roberts Redford. Hún fjallar um Nathan Muir(Redford), CIA njósnara sem er að fara á eftirlaun en síðasta daginn gerist það að fyrrum félagi hans, Tom Bishop(Pitt), hefur verið handtekinn í Kína fyrir njósnir, og segjast Kínverjarnir ætla að taka hann af lífi kl.8 næsta morgun. Nokkrir háttsettir menn í CIA setjast nú niður með Nathan Muir og fara að spyrja hann út í ýmislegt er varðar Tom Bishop. Hann rifjar þá upp gamla daga og byrjar í Víetnam, fer svo til Berlínar og svo til Beirút.

Það eru nokkur mistök ef kalla má í þessari mynd, td. er hringt í Muir í byrjun myndarinnar frá Hong Kong (Muir var í Virginiu í USA), það var morgun í Hong Kong og líka morgun hjá Muir! Hvað voru þeir að pæla?? Eru tvær sólir eða? Það kalla ég stór mistök. En fyrir utan þetta er þessi mynd fínasta afþreying.



**1/2/****

J*O*N*S*I