Pootie Tang - algjör snilld! Snilld snilld snilld!

Hún er pródúseruð af Chris Rock sem leikur líka aukahlutverk í myndinni. Í aðalhlutverki er Lance Crouther sem hefur leikið í CB4, Fear of a Black Hat og Class Act 2. Lance lék einnig karakterinn Pootie Tang í þættinum The Chris Rock Show, þar sem Pootie varð til.

Í stuttu máli fjallar myndin um Pootie Tang, hina fullkomnu ofurhetju. Allir fíla hann - hann prumpar út platínuplötum hægri vinstri, bitch-slappar vonda kalla, er fyrirmynd krakka og draumahönk allra kvenna. Hann talar líka sitt eigið “ghetto-shonuff” tungumál sem er ógeðslega fyndið.

Þessi mynd kom mér geðveikt á óvart. Ég vissi ekkert um hana áður en ég tók hana en gargaði úr hlátri allan tímann! Þó hún höfði líklega meira til þeirra sem fíla myndir á borð við CB4, Don't Be a Menace, Fear of a Black Hat, Friday og “þannig” myndir, þá er ég nokkuð viss um að flestir hafi gaman af henni.

Stjörnur? Fimm af fimm mögulegum - fyrir að vera ótrúlega fyndin.

“Sadda tay on the tippi tai.”