Get Shorty Þessi mynd var gerð árið 1995 og var leikstýrt af Barry Sonnenfeld(Men In Black.Í henni léku John Travolta(Domestic Disturbance),Gene Hackman(Enemy Of The State),Rene Russo(Tomas Crown Affair),Danny Devito(Austin Powers In Goldmember),Dennis Farina(Snatch),Delroy Lindo(Heist),James Gandolfini(The Last Castle),Jon Gries(Men In Black),David Paymer(Payback),Martin Ferrero(Jurassic Park),Miguel Sanoval(Straigt To Hell),Jacob Vargas(Traffic),Bobby Slayton(Bandits).

Þessi mynd fjallar um okurlánarann Chili Palmer(John Travolta)sem er ekki ánægður með lífsviðurværi sitt. Þannig að hann fer til Los Angeles til að innheimta skuld af kvikmyndaleikstjóranum Harry Zimm(Gene Hackman).Þá byrjar hann að vinna að mynd með Zimm sem nefnist Mr Lovejoy og reyna að fá Martin Weir(Danny Devito)í hlutverkið.En þá kemur eiturlyfjasmyglarinn Bo Catlet(Delroy Lindo) og vill endilega hlut í myndinni því Zimm skuldar honum 200 þúsund dollara.Þegar Zimm heldur að Chili sé að svindla
á sér hringir hann í gamlann yfirmann Chili´s og biður hann um að fjárfesta í Mr Lovejoy. En þegar hann kemur Los Angeles lúber hann
Zimm því Chili átti að vera búin að innheimta skuldina. Bo Catlet platar þá svo til að ná í eiturlyfjasendingu á flugvöllin en löggan vaktar hana.En Chili sér það og snýr á Bo,en samstarfsmaður
hans Bear(James Gandolfini)snýst gegn honum og drepur Bo. Og loksins nær Chili að búa til sína eigin kvikmynd ekki þó Mr Lovejoy heldur mynd byggða á þessu litla ævintýri Chili´s í Hollywood.

Mér fannst þessi mynd vera frábær John Travolta leikur snilldar
karakter.Ég gef þessari mynd ***/**** út af því að hún hefur frábæran söguþráð.