The Animal Mynd þessari var leikstýrt af Luke Greenfield og með aðalhlutverk fóru Rob Schneider(Deuce Bigalow Male Gigalow)og Colleen Haskell(Survivor).
Þessi mynd fjallar um Marvin Mange(Rob Schneider) sem á sér þann draum heitast að verða lögreglumaður. Dag einn keyrir hann fram af bjargi en lendir heill á húfi og þá dettur bjarg ofan á hann.Þá finnur einhver brjálaður vísindamaður hann og setur dýralíffæri í hann.


Við það öðlast hann einhvers konar ofurkrafta og nær hann meðal annars að finna lykt af dópi úr 20 metra fjarlægð. Og við það verður hann tekin inn í lögguna en félagi hans setur séer það markmið að
reka hann úr löggunni. En ofurkraftar hans ná völdum yfir honum
og margir dularfullir atburðir fara að eiga sér stað og lögreglan fer að gruna hann um árásir og nautgripastuldi.
En að lokum kemst hann að því að til er annað dýr og það er Colleen og þau giftast og eignast dýrabörn.

Mér fannst þetta vera frábær mynd sem allir ættu að sjá.Ég gef henni ***/****