Hvar eru leikkonurnar á Huga? Áttu þér uppáhaldsleikara? Það gera flestir, koma án efa með uppáhaldsleikarann sinn á stundinni, enda nóg af þeim.
En áttu þér uppáhaldsleikkonu? Margir sem ég þekki þurfa að hugsa sig nokkuð lengi um hvaða leikkona er uppáhaldið þeirra.

Hér á eftir langar mig að fjalla um nokkur uppáhaldshlutverkin mín með leikkonum.

1. Jodie Foster - Silence of the Lambs
Foster verður alltaf uppáhaldssleikkonan mín, leikur hennar sem Clarice Starling í SotL var alveg óaðfinnanlegur, alls ekki síðri heldur en leikur Hopkins sem Dr. Lecter. Alveg toppleikur hjá Foster, punktur.

2. Julia Roberts - Erin Brockovich
Julia hefur alltaf vissan sjarma þegar hún er að leika, en þó sérstaklega í Erin Brockovich. Enda er hún þannig persóna í myndinni, ekki var bara útlitið sem heillaði þar, heldur framkoma hennar sem var oftar en ekki alveg frábær. Sérstaklega atriðið þegar hún var að tala við konulögfræðinginn í endann, snilld. Samt lélegt hjá henni að þakka ekki sjálfri Erin Brockobich á Óskarnum, miðað við að hún þakkaði nánast allri heimsbyggðinni :)

3. Hilary Swank - Boys Don\'t Cry
Það er góð ástæða fyrir því að Swank fékk óskarinn fyrir hlutverk sitt sem strákur í þessari fínu mynd. Leikur Swank var alveg til fyrirmyndar og alveg óskarsshæfur.

Þessar þrjár eru allavega með þeim skemmtilegri hlutverkum sem ég hef séð, en þó er Hilary Swank samt ekki ein af mínum uppáhaldsleikkonum.

En núna þætti mér gaman að fá að vita hver er uppáhaldssleikkonan þín og fyrir hvaða hlutverk?

sigzi