Okey hér kemur smá skoðanakönnun sem hljóðar einfaldlega þannig…..

“HVER ER SORGLEGASTA MYND SEM ÞÚ HEFUR SÉÐ?”

Ég sendi hana inn sem grein því ég nenni ekki að fara að gera hátt upp í þúsund svarmöguleika á einni könnun.

Ég veit nú ekki með vissu hvað mitt svar er við spurningunni en mér fannst, La vita é Bella, Love Story, The Green Mile, American Beauty, Moulin Rouge og einhverjar fleiri sem ég man ekki eftir. Ég hef þó aldrei náð að tárast yfir mynd.

Ég held að margir eiga eftir að segja að Pearl Harbor eða Titanic sé sorglegasta mynd sem þeir hafa séð en mér fannst þær nákvæmlega EKKI NEITT sorglegar. Maður fékk enga samúð aðalpersónunum og mín vegna hefðu þær mátt fara til fjandans!!!

En ég vona að ég fái sem flest svör…….

kv. ari218