Gamli snillingurinn er látinn. Samleikur hans og Jack Lemmon var hreinn galdur. Þeir áttu svo vel saman. Aðdáunarvert hvernig karlskömmin vann frá á síðustu stund. Gaf ekkert eftir þrátt fyrir háan aldur. Skrítið, en einmitt núna minnist ég þess að hann lék í “King Creole” á móti Elvis Presley. Þar var hann vondi kallinn og fórst það vel úr hendi. Jæja, hvað um það. Megi minning hans lifa.