Það er afskaplega leiðinlegt hvað fáir hafa séð myndina “the Bandits” með Bruce Willis og þeim. Ég fór bara á hana af því að það var uppselt á e-a aðra mynd sem ég ætlaði að sjá, var satt að segja alls ekkert spennt fyrir Bandits, en kom út brosandi með sömu þægilegu tilfinninguna eins og þegar maður hefur verið að versla og kemur heim með poka fulla af nýjum fötum (kannski bara sumir). Allaveganna hef ég verið með myndina á heilanum, endirinn kemur á óvart og reyndar allur söguþráðurinn. ætlaði á hana aftur um daginn en átti ekki pening, hehe, allavega topp mynd fyrir alla :) **** 4 stjörnur :)