The Shawshank Redemption THE SHAWSHANK REDEMPTION
Framleiðsluár:1994
Leikstjóri:Frank Darabont
Aðalleikarar:Morgan Freeman, Tim Robbins, Bob Gunton, William Sadler
Handritshöfundur/ar:Stephen King, Frank Darabont
Lengd:142min

Þessi mynd er stórkostleg!Frábær kvikmynd byggð á skáldsögu Stephen King´s, og fjallar um bankamanninn og endurskoðandann Andy Dufresne, sem dæmdur er í lífstíðarfangelsi fyrir morð sem hann segist ekki hafa framið. Þegar hann lendir í steininum vingast hann við annan fanga, sem kallaður er Red. Red er svokallaður reddari, hann reddar öðrum föngum pakka af sígarettum og öðru ef þarfnast. En lífið er engin paradís í fangelsi, Dufresne er í byrjun vanalega laminn af óprúttnum föngum, og þarf að hlusta á crap frá verðum. En hann nýtir sér kunnáttu sína á peningamálum til að hjálpa spilltum fangelsisstjóra, og fær þá betri þjónustu fyrir. Tuttugu á líða og lífið í fangelsinu gengur sinn vanagang en einn morgunn er Dufresne horfinn!Meira segji ég ekki!

Leikurinn er stórkostlegur, ég held að ég hafi aldrei séð Tim Robbins svona góðan, en bíðið bara eftir því að sjá hann Freeman leika, hann er stórkostlegur. Handritið og plottið er frábært, ekki átti ég von á því sem gerðist en…stórkostleg mynd

Frábær mynd
****/****

smokey…