Vaaaaaaá!!! þessi mynd er hrikaleg! alveg það allra mesta sem ég hef séð allavega. hún er geðveikt vel gerð og bara ógeðslega raunveruleg og heldur manni gjörsamlega strekktum allan tímann. og svo eru svo mörg bregðuatriði að maður er alltaf bara að bíða eftir að eitthvað gerist.. en það kemur alltaf eitthvað akkurat þegar maður á ekki von á því. og michelle pfeiffer leikur hlutverkið svo vel og harrison ford líka.. þetta er bara alveg mögnuð mynd! ég mæli geðveikt mikið með henni! sérstaklega fyrir spennufíkla og alla sem hafa gaman af því að fá smá hnút í magann :) ég var að vísu öskrandi og æpandi alla myndina og meira að segja kærastinn minn öskraði í einu atriðinu! :):) vá! þetta er alveg hrikalegt sko. endilega sjáið hana! þið sjáið ekki eftir því :)