1. Spurt er um leikara. Leikarinn er fæddur í Texas Bandaríkjunum. Þegar hann hóf leikaraferil sinn þá hafði bróðir hans náð ágætu starti á ferli sínum. Hann var skildi við þekkta bandaríska
leikkonu árið 2001, eftir 10 ára samband. Á 10. áratugnum stóð hann í baráttu við kókaínfíkn. Síðusta áratug eða svo hefur hann leikið
loftslagsvísindamann, ruðningsstjörnu, forseta bandaríkjanna, bandarískan stjórnmálamann í mynd með Billy Bob Thornton. Þess má geta að leikarinn átti afmæli fyrir skömmu. Hver er þessi ágæti
maður?

Þessi ágæti maður er Dennis Quaid. Konan sem talað er um er Meg Ryan, hann lék loftslagsvísindamann í The Day after Tomorrow, ruðningsstjörnu í Any Given Sunday ofl.

2. Spurt ert um bræður. Bræðurnir hafa verið mjög gríðarlega sigursælir á sínu sviði og sópað til sín verðlaunum í þau 24 ár sem þeir hafa verið í bransanum. Seinasta mynd þeirra var enginn undantekning og vann hún til ferna óskarsverðlauna fyrr á þessu ári. Hverjir eru bræðurnir og fyrir tvær myndir hafa þeir fengið óskarsverðlaun fyrir?

Þessi var frekar auðveld en svarið er að sjálfsögðu Coen bræðurnir, Joel og Ethan. Myndirnar eru No Country For Old Men og Fargo.

3. Spurt er um kvikmynd. Kvikmyndin var gerð á síðari hluta 10. Áratugsins. Myndin er gerð eftir bók. Í kvikmyndinni má finna mikla ádeilur um veraldlegar eigur fólks í nútímanum sem kristallast í framkomu eins karakters í myndinni.Leikstjóri hennar hafði áður gert mynd með sama leikara og leikur annað aðalhlutverkið í þessari mynd sem um er spurt. Í myndinni er að finna aragrúa af flottum og heimspekilegum „quotes“ og á önnur aðalpersónan heiðurinn af þeim flestum. Hver er myndin?

Þetta er Fight Club.

4. Hversu mörg óskarsverðlaun hefur Jack Nicholson fengið og nefnið tvær af þeim myndum sem hann hefur fengið þau fyrir.

Þrenn samtals, As good as it gets, Cuckoo's nest og Terms of endearment.

5. Nefnið tvær af þeim þremur myndum sem hafa afrekað það að vinna Óskarsverðlaun fyrir besta leikara í aðalhlutverki, bestu leikkonu í aðalhlutverki, besta leikstjóra, bestu mynd og besta handrit.

Myndirnar eru Silence of the lambs, Cuckoo's nest og It happened one night.

6. Tveir menn hafa leikið saman í 5 myndum. Sú nýjasta er frábrugðin hinum því þá voru þeir ekki í aðalhlutverkum. Þrjár af þeim fimm myndum sem þeir hafa leitt saman hesta sína hafa þeir verið undir leiðsögn sama leikstjóra, sá leikstjóri er einn sá þekktasti í bransanum. Seinasta mynd sem þessir þrír gerðu saman er frá árinu 1995 og gerist í Las Vegas. Báðir þessir leikarar hafa unnið Óskarsverðlaun þó almennt er sagt að annar leikarinn sé töluvert virtari en hinn. Hverjir eru leikaranir tveir og hver er leikstjórinn sem hefur unnið með þeim þrisvar sinnum?

Spurt var um snillingana Robert DeNiro og Joe Pesci, leikstjórinn er auðvitað Martin Scorcece.

7. Hver var síðasta mynd Olivers Reed?

Margir sem svöruðu Orpheus & Eurydice en það er ekki rétt. Síðasta mynd hans var Gladiator, hann lést meira að segja á meðan tökum stóð og þurfti að breyta handriti myndarinnar vegna ótímabærs dauða hans.

8. Leikari einn er fæddur árið 1974. Hann var ekki lengi að komast í kynni við stóru nöfnin því aðeins 13 ára gamall lék hann í mynd eftir Steven Spielberg. Þrátt fyrir að vera mjög virtur leikari og þekktur fyrir mikinn metnað fyrir hlutverk sín í kvikmyndum, hefur hann aldrei hlotið Óskarstilnefningu né Golden- Globe tilnefningu. Nýlega hefur hann leikið bónda, töframann og stríðsfanga. Hver er maðurinn?

Þetta er hin eini sanni Christan Bale.

9. 28 dagar, 6 klukkustundir , 42 mínútur og 12 sekúndur. Í hvaða mynd kemur þessi niðurtalning fram?

Auðvelt stig, Donnie Darko.

10. Í mynd sem er talinn ein af perlum kvikmyndasögunnar segir frá ástum í Bandarísku borgarastyrjöldinni. Myndin fékk fjölda verðlauna en ein verðlaun skera sig út úr því, þetta var í fyrsta skipti sem ákveðinn hópur samfélagsins vann til slíkra verðlauna. Hver voru verðlaunin, hver tók við þeim (vann þau) og hver er myndin?

Það voru ekki margir með þetta en myndin er Gone With the Wind, leikkonan Hattie McDaniel fékk Óskarsverðlaun fyrir hlutverk sitt í myndinni en hún var fyrsti blökkumaðurinn til að vinna Óskarsverðlaun.

Þeir sem svöruðu triviunni og stigin þeirra :

Killy= 1+1+0+1+0,5+1+1+1+1+0= 7,5
Kallisto = 0+1+0+1+0,5+0+0+1+1+1= 5,5
DeadlyCat 0+1+1+0,5+0+1+0+1+0,5= 5
JohnMcClane = 0+1+0+1+0+1+1++0+0+0 = 4
Zacked = 1+1+1+1+1+1+1+1+1+1=10!
The Aircraft = 1+1+0+1+1+1+0+1+0+0= 6
Frakkland = 0+1+0+1+1+0+1+1+1+0= 6
OfurAlli = 0+1+0+1+1+0+1+1+0+0= 5
Kobbain = 1+1+0+1+0+0+0+1+1+0= 5
Arnarj = 1+1+0+1+0+1+1+1+1+0,75= 7,75

og röð eftir stigum:

Zacked
Arnarj
Killy
The Aircraft og Frakkland
Kallisto
DeadlyCat, OfurAlli og Kobbain
John McClane
Become vengeance .. become wrath.