Klukkan 00:00 í kvöld þann 3-4. Janúar mun Haukur M. Hrafnsson kynna nýjustu kvikmynd sína 1. Apríl. Hann gerir það í kvöld af því að þann 4. Janúar fyrir 26 árum fæddist hann, þannig að dagsetningar eru mjög heppilegar.

Haukur framleiddi og leikstýrði kvikmyndinni (Ó)eðli sem kom út árið 1999 og finnst í öllum helstu Videoleigum.

Trailerinn finnst á http://www.simnet.is/brainstorm/ og verður í Quicktime formatti. Enn er óvitað um stærð treilersins en samkvæmt mínum spádómum verður hann að vera minni en 5mb af því að heimsíðusvæði Símans internet er 10mb, að ég held.

Ég hlakka mikið til að sjá þessa mynd og ég mundi kalla þetta svona “teaser” fyrir sjálfann mig :)

Bíókveðjur!
d3coder!
—————