Ég er svoldið seinn að skrifa um þetta enn ég bara verð að segja það sem mér finnst um þessa mynd

Þessi mynd er hrá og hræðilega ótrúleg og ég leyfi mér að segja það, hræðileg. Ég fór vongóður á þessa mynd, ég hafði reyndar ekki séð neinn trailer af þessari mynd enn vinur minn ákvað að draga mig á þessa mynd. Það lá við að ég gengi út.
Í auglýsingunni af henni í mogganum segir: “Bardagasnillingurinn Jet Li fer hér á kostum í frábærri hasarmynd sem inniheldur stórkostlegar tæknibrellur og mögnuðustu bardagaatriði sem sést hafa” Þetta sagði mér einhvað um myndina sem ég var í þann mund að fara að sjá. Enn í rauninni varð þetta ein af leiðinlegustu myndum sem ég hef séð, ég hef ekki verið eins “óspenntur” í langann tíma á meðan myndinni stóð. Ég neita að gefa þessari mynd stjörnugjöf
Ef þið hafið séð þessa mynd gefið mér álit ykkar á henni =)

Kv. Keyze