Trivia EKKI NOTA INTERNETIÐ!

(ATH! Stafsetningavillur í nöfnum leikara eru til að ekki sé hægt að nota google.com)

Þegar kvikmynd nokkur kom fyrst út voru höfundar hennar tveir, leikstjórinn og framleiðandi hennar, sem síðar giftist honum.Maður nokkur kærði það, og sagði að söguþráðurinn væri sá sami og í sjónvarpsþáttum sem hann samdi. Leikstjórinn tapaði málinu og í dag kemur nafn mannsins fram í kreditlistanum. Nokkrum árum áður hafði leikstjórinn leikstýrt sinni fyrstu mynd, sem var framhald. Í dag er hans helst minnst fyrir framhöld, ef frá er talin tekjuhæsta mynd hans, en hún er stórt skerf frá fyrri myndum hans. Hver er myndin og hver er leikstjórinn?

Íslensk kvikmynd bar titil sem verður að hafa talist vel á undan sinni samtíð, en í dag er tungumálið sem hann er á mest notað af tölvuspilurum. Hvaða mynd og hvaða tungumál er þetta?

Maður einn hefur vakið athygli fyrir leikferil, leikstjórn og einkalíf sitt. Hann átti í stormasömu sambandi við fjölmiðla á árum áður, og er talið að það hafi verið ástæða skilnaðar hans. Hann sló fyrst í gegn í unglingamynd en er í dag handhafi Óskarsverðlauna. Þó er talið að eins og svo oft að verðlaunin hafi verið gefin vegna stórleiks hans í mynd tveimur árum áður, en akademían gefur slík verðlaun oft, samanber Judi Dench. Í desember á síðasta ári sótti kona hans um skilnað. Hver er Maðurinn?

Á áttunda áratug síðustu aldar kom út mynd um mann sem má segja að taki lögin í eigin hendur eftir að fjölskylda hans er myrt. Aðalleikari hennar hafði gert garðinn frægan í kúrekamyndum nokkrum árum áður og má þar helst nefna endurgerð nokkra, en á þeim tímum voru þær ekki jafn algengar og nú. Báðum myndunum fylgdu framhöld, og nú er spurt: hvaða myndir eru þetta og hversu margar voru framhaldsmyndir þeirra?

Arcibald Leech er líklega einn frægasti leikari heims, en er þó þekktur undir öðru nafni. Hvert er það?

Maður einn er einhver virtasti leikari heims. En þó er virðing þessi aðallega vegna einnar myndar, og vann hann mörg verðlaun fyrir. En þó hann hefur einnig leikið í mynd sem hefur verið nefnd dýrasta klámmynd heims. Einnig er hann einn af fáum sem hafa haft afskipti af Batman og Superman. Hver er maðurinn?

Hjúkrunarfræðingur, Íþróttaverslunarmaður, Líkamsræktarfrömuður, Módel, Sjónvarpsfréttamaður og Næturvörður.
Hver er þetta?

Hvað eiga Frank Sinatra og Bruce Willis sameiginlegt?

Hvaða mynd er þetta?
http://www.dvdtown.com/images/displayimage.php?id=3357

Skila í PM. Skilafrestur til 11 mars!