Minority Report Minority Report heitir nýjasta mynd Steven Spielberg´s. Hún á víst að gerast í framtíðinni ( árið 2016 ). Og á að fjalla um lögreglumanninn John Anderton ( Tom Cruise ) sem vinnur á sérstakri deild þar sem morðingjar ( eða soon-to-be ) eru handteknir áður en þeir gera glæpina. En líf lögreglumannsins breytist heldur betur þegar hann er ásakaður um morð sem hann á eftir að gera. Handrit myndarinnar er sagt vera mjög sterkt og fær 9/10 í einkunn hjá ónafngreindum aðila. Hún á að vera mjög dökk og og mjög spennandi á köflum. Myndin á víst að koma í Bandaríkjunum 28 Júní ( 2002 ), og mun að öllum líkindum koma eitthvað seinna hér á landi. Í helstu hlutverkum eru Tom Cruise, Colin Farrel og Samantha Morton. Teaserinn er komin á netið og ég verð bara að segja að hann er djöfulli flottur, frekar skuggalegur og myndin lýtur út fyrir að vera nokkuð ofbeldisfull. Hægt er að nálgast hann á kvikmyndir.is. Ég bíð mjög spenntur eftir þessari.