30 milljónir, þakka þér fyrir! Sagt er að Arnold Schwarzenegger eigi að fá 30 milljónir dala fyrir að leika í Terminator 3: Rise of the Machines. Hann vill víst líka fá hluta af gróða myndarinnar og söluvara. Þetta er hæsta upphæð sem leikari hefur fengið og er sagt að hann geti heimtað meira, aðalega útaf því að enginn mun geta leikið Tórtímandann mikla. Myndin á að kosta um 180 milljónir dala og á að gerast 10 árum eftir mynd 2. Vondi karlinn verður endubætt T-1000 og verður kvenkyns. Gaman verður að sjá hvort þeir ná að gera hana jafn góða og fyrri myndirnar 2.

Hann er núna að jafna sig eftir að hann braut nokkur rifbein í mótorhjóla slysi sem gerðist í Santa Moniku um helgina.