Svona af því að það hafa komið nokkrar greinar um góð tagline, quotes og svona í bíómyndum.
Þá langar mig að koma með þetta, mig minnir að einhver hafi komið með grein “Eftirminnilegustu augnablikin”.

Hvað er svo eftirminnilegata atriðið mitt?

Godfather 1, þegar Don Corleone var að leika sér við sonarson sinn í garðinum og hann fær hjartaáfall og deyr. Strákurinn heldur bara áfram að leika sér. Frábært atriðið þegar það var verið að gera grín að þessu í Mafia.

Svo eru flest uppáhaldsatriðin mín úr Godfather, sérstaklega líka þegar Sonny ræðst á Carlo fyrir að lemja systur sína. Mjög gervilegur bardagi, en samt rosalega miklar tilfinningar í gangi.

En hvað er uppáhaldsatriðið ykkar?