Ocean´s Eleven Strax og ég sá trailerinn af þessari ákvað ég að sjá hana pottþétt. Á IMDb er sagt að hún sé hasar, gaman og glæpa mynd sem lofar mjög góðu. En það besta af öllu er leikstjórinn Steven Sodherberg. Hann fékk 2 Óskarsverðlaunatilnefningar í fyrra fyrir leikstjórn á Traffic og Erin Brockovich. Báðar þessar myndir voru geðveikt vel leiknar en ég var nærri búinn að sofna yfir Erin Brockovich því húna var svo leiðinleg.

Leikararnir í myndinni eru engir aukvissar af þeim má nefna, Julia Roberts, George Clooney, Brad Pitt, Scott Caan, Andy Garcia, Don Cheadle og Matt Damon.

Myndin fjallar um 11 glæpamenn sem stjórna spilavítum og ólöglegum boxveðmálum í Las Vegas en af þeim er Danny Ocean (George Clooney) fremstur í flokki.

Myndin á að vera frumsýnd 7. desember í USA en þann 26. des. á Íslandi.

“Are you in or out” (tagline-ið)