Frekar slöpp þáttaka hérna, Trivia 7 er í gangi núna og þá vil ég 15 manns á skrá.

Arnarj … 8
Killy … 6
Gs1993 … 6
Voidroid … 6
Arihrannar … 5
Kobbain … 5
THT3000 … 4
Gillzilla … 3 1/2



1. Leikari nokkur er talinn með hæfileikaríkari mönnum í Hollywood þessa dagana, en hann hefur m.a. leikið : Hetju, töframann og mann sem berst við ógurlegar fljúgandi ófreskjur. Hver er leikarinn?

Christian Bale er maðurinn, Batman Begins, The Prestige og Reign of Fire eru myndirnar umræddu.

2. Listamaður einn hefur bara leikið í einni bíómynd enda þekktur fyrir allt annað en kvikmyndaleik. Gælunafn hans mætti lauslega þýða sem Mjói Skuggi. Hver er maðurinn og hvað heitir þessi eina bíómynd sem hann hefur leikið í?

Tiltölulega létt spurning. Eminem (Slim Shady) heitir hann og myndin er 8 Mile.

3. Stafarugl. Séu þessir stafir í réttru röð mynd þeir nafn á frægri bíómynd. –Csstuarap-.

Stafaruglið var frekar tricky í þessari triviu, Spartacus!

4. Spurt er um leikstjóra. Hann byrjaði í sjónvarpsþáttum og tók að sér að leikstýra í hinum og þessum þáttaröðum. Ferillinn spannar næstum 50 ár og hann er langt í frá hættur, síðasta myndin hans kom út í fyrra og skartaði einum mesta harðhaus síðustu ára. Í dag minnast flestir leikstjórans fyrir léttar spennumyndir með tveimur sömu lögreglumönnunum í aðalhlutverki, sem eru eins og svart og hvítt en geta ekki án hvors annars verið. Hver er leikstjórinn?

Richard Donner er rétt svar. Hann leikstýrði Lethal Weapon myndunum sem allir ættu að þekkja.

5. Hvað eiga Paul Walker, Adam Sandler og Jamie Foxx sameiginlegt?

Þeir eiga það sameiginlegt að hafa allir leikið ruðningskappa, Paul Walker í Varsity Blues, Adam Sandler í Waterboy og The Longest Yard og svo Jamie Foxx í Any Given Sunday.

6. Spurt er um leikara. Þetta er alger senuþjófur í þeim tiltölulega fáu myndum sem hann hefur leikið í og er ótrúlega fjölhæfur leikari sem getur kallað fram hinar ótrúlegastu raddir, sem hann er í rauninni mjög þekktur fyrir. Hann mun eflaust eiga stóran hlut í teiknimynd sem mun loksins koma í kvikmyndahús núna í sumar. Hvaða fjölhæfi leikari er þetta?

Hér var spurt um Hank Azaria en hann talar fyrir margan karakterinn í Simpsons þáttunum, sem og myndinni sem kom fyrir stuttu.


7. Tom Hanks hefur dáið í fjórum myndum. Rétt eða Rangt?

Rangt, þær myndir sem hann hefur dáið í eru Philadelphia, Saving Private Ryan og Road to Perdition.

8. Úr hvaða mynd er þetta skjáskot?

Crouching Tiger, Hidden Dragon.

9. Úr hvaða mynd er þetta skjáskot?

Gaukshreiðrið eða One Flew over the Cuckoo’s Nest á engilsaxnesku.

10. Hver er þetta ?

Þetta er ofurframleiðandinn Jerry Bruckheimer, framleiðir CSI, Pirates-þríleikinn, Armageddon og ótal aðrar myndir.