Talið er að Ben Affleck og Gwyneth Paltrow muni leika saman í endurgerð á Alfred Hitchcock myndinni “Suspicion”. Myndin fjallar um konu sem áttar sig á því að hún giftist morðingja og telur hún sig vera næst á listanum. Phillip Kaufman mun leikstýra myndinni og er hann þekktastur fyrir myndina “The Unbearable Lightness Of Being”.

Fyrir 12 mánuðum síðan hefði Gwyneth sagt “nei” því að á þeim tíma þá töluðust þau Affleck ekki við hvort annað. En núna eru þau orðnir góðir vinir aftur.

Síðasta mynd þeirra saman var myndin Bounce.

Frétt á hamstur.is með mynd af Gwyneth Paltrow sem sýnir… tja… meira heldur en minna –> http://www.hamstur.is/new/main.php?frettID=1623&frett=meira