Þessi mynd gerist í heimi skrímslanna. Hún er um tvö skrímsli Sullivan og Mike. Þeir vinna í verksmiðju sem framleiðir orku úr hræðslu öskrum barna. Það eru tvö skrímsli sem berjast um það að setja nýtt hræðslu met þ.e.a.s. hræða sem flest börn sem mest.
Skrímslið semér í keppni við Sullivan um að setja metið heitir Randall og það kemst upp að hann hefur sitthvað óhreint í pokahorninu þegar Sullivan þarf að vinna yfirvinnu fyrir Mike sem er að fara á stefnumót með kærustunni sinni. Sullivan sér opnar dyr og ákveður að kíkja inn um þær og þar byrjar allt. Krakkinn kemur út og allt verður brjálað, því skrímsli eru jafn hrædd við börn og börn við skrímsli.

Endilega kíkið á þessa mynd hún er frábær afþreying og vel gerð.


***1/2 af ****

Kv. Daywalker

P.s. Endilega komið með gagnrýni á þessa grein og segið mér hvað ég get lagað í kvikmyndagagnrýni. Þetta er fyrsta kvikmyndagagnrýnin mín.