Ég er svona týpískur unglingsstrákur sem hefur gaman að glápa á HORROR mydir. Ég ákvað að leigja mér slatta af HORROR myndum á FÖSTUDAGIN 13 Júlí. Ég fór og tók mér einhverjar myndir sem ég hafði ekki séð og ekki séð lengi svo fór ég heim og tók til þær HORROR myndir sem ég á og byrjaði að horfa á þær um kl. 15.30 og glápti til klukkan 13.25 dagin eftir og ég sé ekki eftir því þetta var skemmtilegasti tími lífs míns. Ég ætlaði að gera þetta aftur 31 Október en allar góðu HORROR myndirnar voru úti þannig að ég fór bara að horfa á myndir sem ég á “A NIGHTMARE ON ELMSTREET” Myndirnar og svo líka “FRIDAY THE 13TH” Myndirnar og ég komst að því að þessar myndir eru ekkert nema bullið sem kveikti neistan að fyrstu hryllings myndunum, þið vitið þessar með einhverjum ljótum kalli sem var með þykkt yfirvara skegg og var málaður hvítur í framan og klæddist þröngum fötum, skikkju og pípuhatti. En ég sé samt ekki eftir því að hafa horft á þessar myndir því þær hafa aukið skilning minn á hvað það er gaman að GLÁPA.