Úrslit Trivia - Sigurvegari tilkynntur! Trivium hér á kvikmyndaáhugamálinu luku nú um áramótin og höfðu þá verið í gangi í um ár. Einstaka hlé voru tekin inni á milli s.s. sumarfrí og síðan drógust einhverjar Triviur á langinn vegna smá seinagangs. Í heildina urðu þó til 39 stykki sem er prýðindis árangur. Þegar þessu lauk þurftum við stjórnendurnir að taka okkur saman og telja úrslit allra Trivianna vegna þess að gögn um talningu glötuðust á sínum tíma. Eftir talningu var sigurvegari að sjálfsögðu ljós og sá sem hlaut flest stig eða 306,5 talsins var sofus! Til hamingju með það.

Hér er svo topp 10 listi stigahæstu manna og skemmtilega vill til að þetta eru þeir einu 10 sem rufu 100 stiga múrinn:

sofus - 306,5
clover - 283
kitiboy - 233
arnarj -192,5
the doctor - 180,5
killy - 160
rfm - 146,5
zailex - 122
kurks - 112
babbo - 107


Í verðlaun voru 50 frí útlán hjá Laugarásvideo og er hann sofus vel að þessum vinningi kominn.