Þetta tók sinn tíma að koma í verk en loks lét ég til skarar skríða:

arihrannar, arnarj … 10
thedoctor … 9
babbo, sofus, kleinumamma … 8
sigurdurjons, HerbertG … 6
kitiboy … 6 ½
Gillzilla … 4 ½
Xabi … 3


Og spurningarnar..


Hvaða maður hefur hlotið flestu Óskarsverðlaun í sögunni, marga fyrir framleiðslu á teiknimyndum?

Þetta er sjálfur Walt Disney eins og margir voru með rétt. Hann fékk samtals 26 Óskara, 22 vann hann og 4 fékk hann í heiðursverðlaun.

Spurt er um leikstjóra. Hann fæddist í Þýskalandi en hans fyrsta stórmynd var með Halle Berry í öðru aðalhlutverkinu. Hans næsta mynd vakti einnig mikla lukku en hún fjallar um höfund einnar ástsælustu sögupersónu allra tíma. Nýjasta mynd þessa leikstjóra hefur einnig fengið ansi fína dóma og skartar hún Will Ferrell í aðalhlutverkinu. Hver er þessi leikstjóri?


Hér var spurt um Marc Forster. Hann ber ábyrgð á Monster’s Ball, Finding Neverland og hans nýjasta afsprengi er Stranger than Fiction.

Hvaða kvikmyndaheiti er hér ruglað í hel? Nttinarsgtoip.

Smá mistök áttu sér stað hér. Einu p-i var ofaukið. Hins vegar lásu margir í gegnum þá villu og komu með rétt svar sem er Trainspotting.

Í hvaða svarthvítu mynd hefur geðbilaður prestur tattúverað tvo örð, annað þeirra er “Hate”, á fingurna á sér?

Rétt svar hér er klassíkin The Night of the Hunter og orðin tvö eru Hate og Love.

Hvaða mynd ber heiðurinn af að vera fyrsta tölvuteiknimyndin í fullri lengd?

Toy Story.

Stórslysakvikmynd frá árinu 1972 var nýlega endurgerð undir mjög svipuðum titli. Endurgerðinni var leikstýrt af manni sem þekktur er fyrir hasar/slysamyndir en hans mesta verk verður þó a teljast kafbátamynd frá níunda áratugnum. Hvað heitir myndin frá 1972 og hvað heitir kafbátamyndin umrædda?

Kvikmyndin frá 1972 heitir Th Poseidon Adventure og þá ætti endurgerðin að vera gefin. Leikstjóri Poseidon heitir Wolfgang Petersen en hann leikstýrði Das Boot árið 1981 sem var fyrst hugsuð sem mini-series en var síðar meir klippt niður í alllanga kvikmynd.

Í hvaða kvikmynd skipuleggur Michael Douglas hið fullkomna morð?

Lauflétt þessi, A Perfect Murder.

Úr hvaða mynd er þetta skjáskot?

Hér sést Robert de Niro akfeitur í Raging Bull.

Úr hvaða mynd er þetta skjáskot?

Þessi mynd var í leikstjórn Brian de Palma og heitir Blow Out.

Fyrir hvaða mynd var þetta poster notað?

Eins og þið sjáið þegar þið klikkið á linkinn er þetta Angela’a Ashes.



Innan skamms munum við stjórnendurnir hér á /kvikmyndir fara að telja allt klabbið frá upphafi. Vonumst til að geta birt úrslit fyrir mánaðamót. Takk fyrir þáttökuna.