Afsakið þessa töf en ég hef verið að vinna eins og hestur undanfarna daga sem og meðstjórnendur mínir. Síðan er ég of þreyttur núna til að gera dreifingu svara.

Þáttaka var með betra móti í þetta sinn og tóku 25 manns þátt.

arnarj, sofus … 10
kitiboy, Mancio, kleinumamma, clover, thedoctor … 9
Toggi, Sammi92, Grettir, kursk … 8
Sigginn, Loaloa … 7
arihrannar, Giz … 6
sigurdurjons, Halloman, pesimanni … 5
babbo, Bambi69, Dr. Evil … 4
AggalaMansus, Corgan … 3
EygloByfluga, Girfan… 2

Heildarstöðuna verður líklega að telja uppá nýtt þannig sigurvegari verður líklegast krýndur einhvern tímann á nýju ári þegar allt er búið að telja saman. Trivian sem kemur næst (#39) verður þá síðasta Trivian í bili.

Svör:

1. Þessir leikarar ( #1 #2 #3 ) hafa allir leikið sömu persónuna. Hvaða persónu? (þið verðið að sætta ykkur við linkaleysi í þessari spurningu)

Jesús Krist, þetta voru leikararnir Willem Defoe, Jim Caviezel og Ted Neeley.

2. Í hvaða mynd hafði þessi leikari tattúveraða mynd af Roy Orbison á rassinum á sér?

Þetta er Henry Winkler. The Waterboy.

3. Spurt er um leikara. Hann vakti fyrst mikla athygli í réttardrama frá árinu 1996 og gerði allar stelpur trylltar enda með eindæmum myndarlegur og flott vaxinn. Hann hefur leikið í nokkrum athyglisverðum myndum en undanfarið hefur leikarinn ekki valið bitastæð hlutverk og verður að hysja upp um sig buxurnar ef ekki á illa að fara. Í mynd einni leikur hann útsendara guðs á jörðu niðri sem drepur fólk sem hefur brotið fimmta boðorðið. Leikstjóri þeirrar myndar er þó öllu þekktari fyrir að vera fyrir framan myndavélina en engu að síður tókst honum einstaklega vel upp enda fékk myndin fína dóma. Hver er þessi myndarlegi leikari?

Hér var verið að fiska eftir Matthew McConaughey. Myndin frá 96 heitir A Time to Kill.

4. Spurt er um par. Myndin sem þau léku saman í sló í gegn og bjó til stórstjörnu úr aðalleikkonunni sem hefur átt ansi árangursríkan feril. Karlleikarinn var þekktur fyrir en skaust líka upp á stjörnuhimininn. Parið endurtók leikinn tæplega áratug síðar og var fenginn sami leikstjóri til verksins. Sú mynd komst ekki í hálfkvisti við hina myndina og skildi nákvæmlega ekkert eftir sig. Hvaða par er þetta?

Julia Roberts og Richard Gere er parið og myndirnar eru Pretty Woman og Runaway Bride.

5. Hver var fyrsta leikkonan í sögunni til að fá greidda milljón dollara fyrir leikhlutverk; A: Audrey Hepburn f. Breakfast at Tiffany's (1962), B: Anne Bancroft f. The Miracle Worker (1962), C: Elizabeth Taylor f. Cleopatra (1963)?

C: Elizabeth Taylor fyrir epíkina Kleópötru.

6. Sean Penn hlaut sína fyrstu tilnefningu til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt í Carlito's Way árið 1994. Er það RÉTT eða RANGT?

Rangt, árið 1996 f. Dead Men Walking.

7. Leikari einn var rísandi stjarna þegar hann lést langt um aldur fram, 28 ára gamall. Hann lést fyrir slysni á tökustað þegar brot úr púðurskothylki úr gallaðri byssu, skaust inn í líkama hans og dró hann til dauða. Nokkrar samsæriskenningar hafa verið uppi um dauða hans, sumir trúa því að leikarinn hafi verið myrtur en það er allt á huldu. Hver er þessi leikari?

Brandon Lee er svarið, sonur goðsagnarinnar Bruce Lee sem einnig lést á nokkuð dularfullan hátt sjálfur. Brandon Lee lést við gerð myndarinnar The Crow sem fékk góðar við tökur og synd að þetta slys hafi átt sér stað.

8. Hvaða breski leikari heitir réttu nafni Maurice Joseph Micklewhite?

Þessi kauði nefnir sig Michael Caine.

9. Úr hvaða mynd er þetta skjáskot?

50 first dates.

10. Úr hvaða mynd er þetta skjáskot?

Face/Off.