þessi mynd tók saman helstu atriðin í Scream, I know, blair witch og mörgum fleirum myndum eins og td the usual suspects og mörgum unglinga myndum og einfaldlega drullaði yfir hvað þessar “hryllings”myndir voru hræðileg framlög kvikmyndaiðnaðarins til hins almenna sjónvarpsglápara. Þær voru bara svo óraunverulegar eins og í I still know þú lifir ekki það af að vera skotinn 6 sinnum og grafinn lifandi svona eins og í myndinni þá lifir þú það ekki af að láta taka af þér hausinn.
Þessi mynd var alveg frábær skemtun en þetta er ekki mynd til að draga mömmu og pabba því það er mikið af aulahúmor (ja það kallast víst það) og góðum bröndurum, ásamt mikið af bakgrunns bröndurum eins og var í loaded weapon. Sum sé virkilega snilldarleg afþreying ef þú ætlar í bíó til að skemmta þér en ekki ef þú ætlar í bíó til að sjá eitthvað sem er ógurlega vel gert eins og Titanic(hún var vel gerð en gvendur góður hún var leiðinleg)