The Longest Day Kannski kannst menn við þessa mynd sem er frá 1962. Myndin er um innrás Bandamanna í Normandí í júní 1944. Aðdragandinn er langur en góður og innrásin vel gerð. Í cast listanum á DVD disknum eru engin nöfn, því það stendur 48 international stars eða 48 alþjóðlegar stjörnur, og má nefna Sean Connery, John Wayne, Gert Fröbe (lék Goldfinger í samnefndri Bond-mynd) o.fl. Þessi mynd er algjör snilld og var tilnefnd til óskars t.d Besta mynd. Hún fékk tvo óskara, Best special effects og Best cinematography. Stórmynd í augu allra sanna kvikmyndaáhugamanna.

DVD inniheldur þrjá trailera á einum diski og gerð myndarinnar á hinum disknum. Myndin er 178 mínutur. Diskurinn færst í Skífunni á 3599 (two disk set)

Maltin: * * * *
Gullbert * * * *

Takk Fyrir
Gullbert