Hérmeð koma úrslit úr Triviu 28:

arnarj … 10
sofus … 9 1/2
kursk, clover … 9
Paraphilias … 8
babbo, Mancio … 8
kitiboy, triggz … 6
Kallisto … 5
Grettir, zailex … 4
THT3000 … 3 1/2
SigridurSt … 3

Spurningarnar:

1. Nokkrar kvikmyndir eru byggðar þannig að þær spilast aftur á bak. Ein þeirra reynir þó á þolmörk áhorfandans með tveimur hrottalegum atriðum, annað þar sem maður er barinn til ólífis inná hommastað og annað þar sem konu er nauðgað í undirgöngum í um 10 mínútur. Hvað heitir þessi mynd?

Þessi kallast Irréversible og gekk fram af mörgum á Cannes-hátíðinni árið 2002.

2. Þekktur leikari ákvað að taka upp listamannsnafn áður en hann hóf ferilinn. Hann átti síðan nokkur börn sem að öll reyna eitthvað við leik en tveimur sonum hans gengur þó best. Annar þeirra ber listamannseftirnafn föðursins en hinn ber hið rétta eftirnafn fjölskyldunnar. Hvað heita þessir bræður?

Martin Sheen heitir í raun og veru Ramon Gerard Antonio Estevez. Hann á nokkra syni en ég var að sjálfsögðu að fiska eftir Charlie Sheen og Emilio Estevez.

3. Eftir að hafa gert velheppnaða kvikmynd úr Síðari heimsstyrjöld sem að fór vel ofan í Akademíuna (Óskarinn) var næsta verkefni leikstjóra/leikara að kvikmynda klassískt ævintýri. Sú mynd misheppnaðist þó algjörlega og var fyrsta myndin til að vera tilnefnd til Razzie-verðlaunanna sem er ekki á ensku en myndin var á ítölsku. Hvað heitir þessi mislukkaða mynd?

Fyrri myndin er La vita é Bella (Life is Beautiful) sem margir kannast við. Eftir það ákvað Robert Bengini að gera mynd um Gosa (Pinocchio) sem að er víst alveg hroðaleg.

4. Í hvaða mynd leikur Johnny Depp mann sem er greinilega undir sterkum áhrifum frá einum þekktasta leikara þöglu myndanna?


Ed Wood var vinsælt svar en ekki rétt. Johnnu Depp lék þetta hlutverk í myndinni Benny & Joon. Depp er þar Buster Keaton endurfæddur.

5. Allir hafa þessir menn hafa leikið föður hans,
http://news.softpedia.com/images/news2/Jon-Voight-Lolita-Davidovich-are-Ready-for-SEPTEMBER-DAWN-2.jpg
http://www.telegraph.co.uk/arts/graphics/2005/07/01/bfgraduate01.jpg
http://www.judyberlin.com/MainMenu/Actors_Bios/bob.jpg hver er leikarinn?


Ben Stiller er maðurinn.

6. Úr hvaða mynd er þetta skjáskot?

The People vs. Larry Flynt.

7. Úr hvaða mynd er þetta skjáskot?

Meistari Vin Diesel…. Pitch Black er svarið.

8. Í hvaða mynd getur aðalsöguhetjan ekki beygt til vinstri?


Þetta gerist í Zoolander.

9. Mynd fjallar um fólk sem fer til Evrópu til þess að keppa í nýstárlegri íþrótt. Ekki er hægt að segja að myndin skarti úrvalsliði leikara en þó er einn leikari frægur. Hvaða mynd er þetta og á hvaða fræga lista er hún?

Rollerball er myndin og hún er á Bottom 100 á imdb.com.

10. Leikari gerði mynd sem ekki var talin mjög góð og hann lenti upp á kant við einn frægasta gagnrýnanda heims sem sagði í dómnum sínum um myndina “Mr ****, your movie sucks.” Hvaða leikari er þetta og hvað heitir gagnrýnandinn?

Þetta var Rob Schneider en hann fékk útreið hjá Roger Ebert.

Takið nú þátt í Trivu 29 áður en hún hverfur af sjónarsvifinu í kvöld.