James Bond
Þegar maður segir; James Bond, veit fólk alveg um hvern mann er að tala. En James Bond er meira en persóna sem var túlkuð í kvikmyndum og bókum. Ian Fleming, höfundur flestra bókanna, skapaði njósnara og um leið gaf honum persónuleika, æsku og viðhorf á lífið. Í þessari grein færð þú að vita meira um þessa heimsþekktu persónu sem allir vita hver er en þó of fáir vita um bakrunn hans.


Almennar upplýsingar

James Bond er myndalegur breskur njósnari með einkastafina 007, sem þýðir að hann hefur leyfi til að drepa. Hann ferðast um heiminn og notar sýnar gáfur, bardagakunnáttu og hágæða tækni til þess að sigra illmenni sem sækjast eftir heimsyfirráðum. Ian Fleming notaði þó ekki mikil tæki og tól í bókum hans en var eitt af sölumerkjum Bonds þegar myndirnar komu út. Önnur sölumerki Bonds er m.a. að hann er hrifinn að vodka martini, hans áhuga á Walther PPK handbyssu og vana hans á að kynna sig sem: „Bond.. James Bond”.

Fleming skírði James Bond eftir líffræðing sem hafði það nafn. Fleming var mikill fuglaáhugamaður og þegar hann rakst á eintak af bókinni A Field Guide to the Birds of the West Indies, vissi hann strax að hann myndi skíra njósnarann eftir nafn höfundsins. Rithöfundurinn vissi að hann ætti að hafa dýran og góðan lífsstíl og þegar hann hitti mann á Estoril spilavítinu í Portúgal, var hann viss um hvernig hann vildi hafa hann. Þess má til gamans geta, að fyrsta bókin hans, Casino Royal, er byggð á þessu spilavíti.


Persónulegar upplýsingar

Andrew Bond, faðir James Bonds, var skoskur og móðir hans, Monique Delacroix var svissnensk. Bæði dóu þau í slysi sem átti sér stað meðan þau voru í fjallaklifri þegar Bond var aðeins 11 ára gamall. Hann flutti til smábæjarins Kent til frænku sinnar, Miss Charmian Bond og var skjaldamerkið á heimilinu Orbis non sufficit sem þýðir the world is not enough á Latínu. Þetta slagorð kom í myndunum On Her Majesty’s Secret Service og The World is not Enough.

James Bond var örstutta stund í Eton menntaskólanum og fór svo yfir í Fettes menntaskólann. Hann sótti svo í háskólann í Geneva en 1941 fór hann í breska flotann. Þaðan vann hann sig upp í bresku leyniþjónustunnar.
Fæðingardagur Bonds hefur mikið verið rætt um. Samkvæmt bók John Pearson, James Bond: The Authorized Biography of 007, segir hann að Bond fæddist 11. nóvember 1920. Engin bók Flemings styður það en í bók hans You Only Live Twice, segir að hann hætti í skóla 17 ára gamall og fór strax í breska flotann (það þýðir að hann fæddist einhverntíman árið 1924). Í bókinni From Russia With Love er sagt frá því þegar hann kaupir sinn fyrsta bíl (Bentley) sem á að gerast 1933, það þýðir að hann hafi verið og ungur til að keyra hvort sem hann hefði átt afmæli 1920 eða 1924, hann ætti þá að vera fæddur einhverntíman á 2. áratug, síðustu aldar.


Ian Fleming

Ian Fleming, skapari og höfundur flestra bókanna, skrifaði margar bækur og smá sögur um persónuna frá árunum 1953-1964. En eftir dauða hans árið 1964 voru aðrir rithöfundar sem héltu persónunni gangandi, þ.á.m.: Kingsley Amis, John Pearson, John Gardner, Raymond Benson, og Charlie Higson.

Áhuginn

James Bond serían er, eins og stendur, númer tvö á peningalista varðandi tekjur mynda, rétt á eftir Star Wars seríunni.

Upprunalegu bækur Flemings voru yfirleitt dekkri og dýpri heldur en blönduna um einstakt illmenni, ófyrirsjáanleg plott og kynæsandi konur - sem er venjuleg blanda Bond myndanna. Myndirnar stækkuðu Q-deilina eða tæknideildina og oftast var söguþráður myndanna og bókanna ekki sá sami.


Leikararnir

Fyrsti leikarinn til að túlka Bond var Bandaríkjamaðurinn Barry Nelson og var það í myndinni Casino Royal 1954 sem framleitt var af CBS sjónvarpsstöðinni. Árið 1956 lék Bob Holnenn rödd Bonds í Suður Afrískum útvarpsþætti í gerð af Moonraker. MGM átti nú eftir að gera 21 Bond mynd og voru fyrstu fimm leikin af Sean Connery sem að mörgum er talinn besti Bondinn. George Lazenby gerði eina mynd og kom Sean Connery aftur og gerði eina í viðbót. Næstu sjö voru leiknar af Roger Moore og því næst Timothy Dalton sem gerði tvær og Pierce Brosnan næstu fjórar. Daniel Craig mun fara með aðalhlutverk Bonds í næstu mynd en það er fyrsta MGM gerðin af Casino Royal en hún hefur verið gerð tvisvar áður. Þrjár James Bond myndir sem MGM framleiddu ekki voru: Casino Royale (1954), Casino Royale (1967) og Never Say Never Again (1983).


Framleiðsla

Albert R. Broccoli og Harry Saltzman voru fyrstu framleiðendur Bond myndanna og byrjuðu þeir á Dr. No sem Sean Connery lék njósnarann. Eftir að myndin The Man with the Golden Gun kom út settist Harry Saltzman í helgan stein. Albert R. Broccoli hætti svo árið 1989. Framleiðslufyrirtækið: „EON Productions” sá um framleiðsluhlið Bonds allt til ársins 1989 og hafði þá hver mynd staðið sig vel varðandi tekjur nema einstakar inn á milli.


Fróðlegir punkar

• Margir halda að framleiðendur Bond myndanna myndu aldrei ráða Bandaríkjamann til að leika hann en í raun hefur það gerst tvisvar og einnig boðið í að leika hann. Adam West hafði tækifæri á að leika í On Her Majesty's Secret Service þegar Sean Connery ákvað í að hætta. Að lokum féll George Lazenby að leika í henni og samþykkti Sean Connery að leika aftur í Bond mynd og var það myndin Diamonds are Forever eftir að Bandaríkjamaðurinn John Gavin hafnaði því. James Brolin átti að taka við af Roger Moore í myndinni Octopussy en framleiðendurnir lokkuðu hann til að gera tvær í viðbót.
• Roger Moore er eini Englendingurinn sem hefur leikir Bond. Sean Connery er skoskur, George Lazenby frá Ástralíu, Timothy Dalton er hálfur Ítali, hálf Velskur og Pierce Brosnan er írskur. Reynar er Daniel Craig, sem mun leika næsta Bond, frá Englandi.
• Ian Fleming var svo hrifinn og vildi ólmur í að Sean Connery léki fyrsta Bondinn að hann breytti persónu Bonds og lét faðir hans verða skoskan.
The Anonymous Donor