framhald af Willow??? Ég rakst á frétt um daginn sem gladdi mitt litla hjarta. Þar stóð að það væri líklegt að George Lucas ætli að koma með framhald af Willow( hann var framleiðandi hennar). Hann mun að sjálfsögðu gera þetta eftir að hann klárar SW episode 3. Þetta er samt ekki allveg staðfest en leikarinn Warwick Davis(dvergurinn í Willow) tjáði einhverjum fréttamanni að hann og Lucas væru að skoða málið. Willow var uppáhaldsmyndin mín þegar ég var polli og ég sá hana trilljón sinnum. Kannski finnst Lucas að það sé kominn markaður fyrir svona ævintýramyndir með tilkomu Lord Of the Rings.
Þeir sem hafa ekki hugmynd um hvað ég er að blaðra um ættu að leiga Willow og jafnvel horfa á hana með litla bró eða frænda og ekki gleyma POPPINU!

—*–*–*
—-*-*-*
——*
——*
——*
-cactuz