Það er ýmislegt sem maður lærir þegar maður horfir á kvikmyndir. Hér er listi yfir nokkur atriði sem þú lærir af kvikmyndum.

1. Það er auðvelt að eignast þakíbúð í New York. Þú getur jafnvel átt þannig íbúð þegar þú ert atvinnulaus.
2. Það er alltaf einn slæmur eineggja tvíburi
3. Þegar þú þarft að aftengja sprengju skaltu ekki hafa áhyggjur af því hvaða vír á að klippa þú velur alltaf þann rétta
4. Flestar laptop tölvur eru nógu öflugar til að yfirtaka samskiptanet þróaðra geimverusamfélaga.
5. Það skiptir ekki máli þótt þú sért að berjast við fjölda manns í bardagaatriði. Óvinirnir bíða þolinmóðir eftir því að ráðast á þig einn í einu og dansa því bara ógnvænlega í kringum þig þar til það kemur að þeim og maðurinn á undan er rotaður.
6. Þegar þú slekkur ljósin í svefnherbergi sést allt samt vel í blárri ljósadýrð.
7. Ef að þú ert ljóshærð/ur og myndarleg/ur þá getur þú orðið heimssérfræðingur í kjarnasamruna 22 ára
8. Heiðarlegar löggur sem vinna sína vinnu vel eru alltaf skotnir nokkrum dögum áður en þeir hætta í vinnunni
9. Í staðinn fyrir að sóa byssukúlum vilja stórtækir glæpamenn alltaf drepa njósnarann með einhverjum tækjum,banvænu gasi,laser eða hákörlum svo að hann hafi a.m.k. 20 mínútur til að reyna að losa sig og flýja
10. Allir brúnir matarpokar innihalda eina franska brauðlengju
11. Allir geta lent farþegaflugvél með smá lýsingum flugmanns eða með því að lesa flight manual
12. Þegar konur setja á sig varalit helst hann á endalaust, jafnvel þótt þær fara að kafa í sjó
13. Þú lifir aldrei af stríð ef þú sýnir einhverjum mynd af kærustunni heima
14. Eiffel turninn sést úr öllum gluggum í París
15. Menn sýna aldrei sársaukamerki þegar þeir eru barðir í köku en þeir væla eins og kellingar þegar konan hreinsar sárin
16. Ef að það er sýndur stór glerflötur er það nokkuð líklegt að einhverjum verður hent þar í gegn fljótlega
17. Ef að kona er stödd í draugalegu húsi á hún alltaf að rannsaka öll hljóð sem hún heyrir á nærfötunum helst
18. Jafnvel þótt það sé ekið eftir beinum vegi er það samt nauðsynlegt að hreyfa stýrið hægri vinstri allan tímann
19. Allar sprengjur eru með tímaglugga með rauðum stöfum svo að allir vita nákvæmlega hvenær sprengjan springur
20. Rannsóknarlögga getur einungis leyst mál ef honum er vikið úr starfi í smá tíma
21. Lögreglan setur alla í persónuleikapróf svo að félagi þinn sé örugglega allgjörlega andstæður póll
22. Allir erlendir herforingjar tala ensku við aðra foringja
23. Allir og þá meina ég ALLIR eru með vasaklút á sér ef einhver kona færi nú að byrja að gráta
24. Allir Frakkar eru dónalegir
25. Allir Bretar eru snobbaðir
26. Allir Rússar og Þjóðverjar eru vondir
27. Þegar einhver segir “bíddu í bílnum” þá þýðir það í raun “komdu á eftir og bjargaðu mér á síðustu stundu”
28. Þegar einhver segir “Ég kem aftur eftir smá stund” þýðir það í raun “Ég er farinn að láta drepa mig”
29. Það er alltaf rigning í jarðarförum
30. Þegar þú ert glæpamaður þá verður þú alltaf að útskýra hvernig þú fórst að öllu við góða kallinn
31. Byssukúlur geta hent mönnum marga metra aftur á bak

Jæja ég ætla bara að vona að þið séuð upplýst varðandi þennan yndislega kvikmyndaheim sem við búum ekki í.
-cactuz