Ekki vera plága... Dont be að menice.. to South Central While Drinking Your Juice in the Hood

Ég bara varð að tjá mig um þessa ótrúlega fyndnu mynd, sem er þó kannski ekki fyndin fyrir þá sem eru viðkvæmir fyrir því að gert sé grín að svertingjum og að þeir séu settir í allar mögulegar steríó-týpur sem nokkrum hvítum manni gæti dottið í hug að setja svartan mann í úr bandarísku gettói.

Þessi mynd er verk Wayans bræðranna sem eru einir af þeim sem gerðu Scary Movie 1-4 og einnig skrifuðu þeir White Chick’s.
Og eins og í öllum þeim myndum sem þeir hafa skrifað leika þeir í myndinni.

Þessi mynd er ætluð til að gera grín af gömlum gettó myndum eins og : Menice II society og Boyz in the hood og fleirum og maður getur séð bregða fyrir lúmskum skotum á þessar myndir í gegnum myndina.

Söguþráðurinn í þessari mynd er ansi þunnur og er eiginlega bara samansafn af atriðum sem tengjast saman á einn eða annan hátt.
Myndin byrjar á því þegar Trey (Shawn Wayans) flytur til pabba síns í gettóið til þess að verða að manni. Og eftir þetta kemur hver vitleysan á eftir annarri sem virkja hlátur taugarnar ansi vel.

Þegar myndin er hálfnuð hægist aðeins á myndinni og lengra líður á milli fyndinna atriða og maður veltir því fyrir sér hvort að höfundarnir hafi viljað gefa manni aðeins frí frá hlátrinum eða þá að þeir hafi kannski ekki viljað ofnota grínið því annars fengi maður eflaust ógeð eða maður yrði bara ónæmur fyrir bröndurunum.

En síðan eykst grínið aftur í seinasta hluta myndarinnar og í endann er maður aftur byrjaður að veltast um af hlátri.
Þessa mynd á ekki að horfa á ef maður vill bara sjá hágæða myndir, því að þessi mynd er enginn gæða mynd, heldur svona mynd sem hefur þann tilgang einan að vera fyndin og ekkert annað en fyndin, þó svo að höfundarnir reyni nú að koma inn einhvers konar söguþræði.

Myndin fær 5,7 að meðaltali á Imdb.com en sú einskunn er örugglega svona lág vegna þess að fólk hefur móðgast af bikasvörtum húmor sem að væri talinn rasismi ef hvítur maður hefði skrifað þessa mynd.

Dæmi um húmorinn í þessari mynd:

Hugsanlega *spoiler*


Þegar pabbi hans sést fyrst sýnist hann ver mun yngri en Trey og síðan seinna í myndinni segir Trey “I used to change my daddy’s dipers”

Amma strákanna situr róleg í ruggustólnum og er að reykja risastóra jónu og segir “Damn! This is some good shit.”

Nokkrir félagar sitja saman og eru að reykja marihuana og sá fyrsti sem tekur smók fellur niður og byrjar að froðufella á fullu og deyr síðan og þá segir Loc Dog “Yo, pass that shit!”

Hvítur maður labbar inní búð og það heyris -ding dong- og síðan labba Trey og Loc Dog inná og þá kemur í bjölunni -nigger-

Loka niðurstaða mín er : ***1/2 / ****