Nokkrir hlutir sem þú vissir ábyggilega ekki um nokkrar hryllingsmyndir II the revenge of the evilundeaddemonzombiemutat Ég reyndi að senda þessa grein inn fyrir löngu en hún var ekki sammþykkt. Svo nú er ég að skrifa hana aftur.

- Hvíti vökvinn sem rennur útúr eyranu á Henriettu (kellingin í kjallaranum) í einu atriði í Evil Dead II er sviti úr Ted Raimi (sem leikur hana) í bland við hvítt púður sem var sett á líkama hans áður en hann fór í latex skrímslagallann.

- Mörg hljóðanna sem rottan í From Dusk Til Dawn gefur frá sér eru í alvöru hljóð úr syni Robert Rodriquez sem var þá ungabarn.

- Myndin (HP lovecraft´s) Dagon er í rauninni mjög lítið byggð á samnefndri bókinni heldur annarri bók um tengt efni eftir sama höfund.

- Í atriðinu þar sem veran slítur af sér hausinn til að sleppa í The Thing voru efni sem gáfu frá sér hættulegar gufur notaðar til að búa til græna slímið sem spýttist úr hálsinum og í fyrstu tilraun varð sprenging útaf gufunum og þurftu brellusnillingarnir að smíða allt upp á nýtt.

- Fyrsti maðurinn sem lifnar við í Re-animator er “body double” hjá Arnold Schwarzenegger.

- Upphaflega vildi Rob Zombie aðeins notast við brellu tækni frá áttunda áratugnum í Devils Rejects en vegna þess hve lítinn tíma hann hafði þá var mikið notast við stafræna tækni.

- Orlok sést aldrei blikka augunum í Nosferatu.

- Halloween var tekin upp um vor þannig að það þurfti að kaupa pappírslauf til að láta myndina líta út fyrir að gerast um haust.

- Mannæturnar í The Hills Have Eyes eru byggðar á alvöru fólki, það var fjölskylda sem bjó í Skotlandi í kringum 1400 sem myrti, rændi og át mörg hundruð manns.

- Upphaflega átti Suspiria að gerast í balletskóla þar sem stelpur yngri en 12 ára voru en hætt var við það vegna ótta við að myndin yrði bönnuð ef ofbeldi gegn börnum væri henni. Þessu var svo seinna breytt í 20 ára en engar breytingar voru annars gerðar á handritinu og þess vegna eru flestar persónurnar barnalegar.

- Patrick Stewart átti að fá hlutverkið sem Arnold Schwarzenegger fékk í Batman & Robin.

-Öll atriðin þar sem sést framan í elikara í the Evil Dead voru tekin upp á fyrstu 6 vikunum eftir það notaði Sam Raimi vini sína og ættingja og eru þeir skráðir sem “fake shemps” á credit listanum.