Eitthvað súperhetju æði er í gangi þar vestra þar sem nú á víst að fara að gera mynd byggða á teiknimyndasögunum um “Iron Man” sem fjallar um milljarðarmæring, Tony Stark að nafni, sem byggir sér einhvers konar Combat Suit til þess að vernda sitt veika hjarta. Áður en hann veit af er hann kominn djúpt ofan í Hero Stöffið.
<br>
<br>
Myndin verður víst fjármögnuð af New Line Cinema og gefin út af þeim en Angry Studios eru samt aðal mennirnir bakvið myndina sjálfa (hver sem þeir eru…).
<br>
<br>
Tim McCanlies (The Iron Giant) mun víst sjá um það að búa til handrit eftir teiknimyndasögunum og hafa Tom Cruise og Nicolas Cage verið orðaðir við hlutverkið.
[------------------------------------]