Josie and the Pussycats Josie & the pussycats er einn af nýju Teen smellunum í sumar. —Myndin fjallar um 3 ungar stúlkur Josie McCoy (Rachael Leigh Cook), Melody Valentine (Tara Reid) og Valerie Brown (Rosario Dawson) í hljómsveit sem kallast Pussycats. Einn góðann veðurdag býðst þeim plötusamningur hjá risastóru hljómplötufyritæki. Áður en þær vita af eru þær orðnar einar stærstu rokk stjörnur í heiminum en þeim fer að gruna að ekki er allt sem sýnist—. Josie & the pussycats er frekar mikil dellumynd heldur en teen mynd. Í myndini eru brandarar annað slagið og eru þeir misfyndnir, carakterar myndarinnar eru ekkert sérstakir og söguþráðinn höfum við séð marg oft. Myndin í heild sína lytið er frekar léleg “teen/grín mynd” þar sem gæðin eru hreynt ekki til staðar eins og búast má við í teen myndum. Josie & the pussycats er ekki bíó ferðar virði, kannski vídeospólu virði en það bara ef þið eruð með vinkonum við hliðina á ykkur en hei þú sofnar eflaust ekki yfir henni þökk sé nokkrum bröndurum þannig að það er hægt að kíkja á hana.

Rachael Leigh Cook …. Josie McCoy
Tara Reid …. Melody Valentine
Rosario Dawson …. Valerie Brown
Alan Cumming …. Wyatt Frame
Parker Posey …. Fiona
Gabriel Mann …. Alan M.