Myndir sem ég myndi aldrei vilja sjá! Eins og margir þá hef ég alveg ágætlega gaman af því að horfa á hryllingsmyndir. Með “hryllingsmyndir” þá á ég við myndir eins og The Exorcist, The Shining og þannig myndir. Auðvitað er erfitt að segja að sumar myndir séu hryllingsmyndir en aðrar ekki, það er erfitt að meta. Flestir myndu samt samþykja það að splatter sé hryllingur. Síðan eru til kvikmyndir sem ganga skrefinu lengra, svokallaðar “snuff” (er ekki búinn að átta mig á þessu orði) myndir, myndir sem eini tilgagngurinn virðist vera að ganga fram af fólki með miskunnarlausu ofbeldi, misþyrmingum, drápum og fleira í þeim dúr. Flestar af þessum myndum eiga ekki heima í flokknum: hryllingsmyndir eða splatter heldur í öðrum flokki. Sick. Þeim sem líkar við þessar myndir segja oft að leikstjórinn sé að sýna mannlegt eðli ,eða eitthvað álíka klisjulegt, sem mér finnst persónulega bara vera kjaftæði. Innst inni líkar þeim að sjá einhverjum misþyrmt hrottalega á skjánum, þeir hafa gaman af því. Ég hef stundum alveg gaman að því að sjá ofbeldi t.d. í Die Hard þar sem John McClane drepur hryðjuverkamenn en að finnast gaman að sjá einhver pyntaðan hryllilega er bara sjúkt. Vissulega höfða þessar myndir til forvitni, ég játa það að ég væri til í að sjá einhverja mynd bara til þess að sjá hana. Ekki til þess að hafa gaman af.

Ég hef ekki séð eftirtaldar myndir og hef ekki áhuga því að sjá þær enda gæti ég ekki endst í gegnum þær allar. Mér finnst erfitt að horfa á eitthvað verulega ógeðslegt, fannst atriðið í Reservoir Dogs þegar hann sker af honum eyrað frekar ógeðfellt, og ef einhverjum finnst erfitt að horfa á svoleiðis viðbjóð þá mæli ég gegn því að sá hinn sami horfi á eftirtaldar myndir.

Cannibal Holocaust

Þegar þessi mynd kom út árið 1980 varð mikið fjaðrafok. Leikstjórinn Ruggero Deodato þurfti að draga leikarana sem léku í myndinni hvert sem hann fór til að sanna að þau hefðu ekki verið étin af mannætum, svo raunveruleg er hún. Dýrapyntingar, morð og mikið fleira í dúr einkenna þessa mynd sem gerist í frumskógi í Suður-Ameríku. Sögð vera ein grófasta mynd sögunnar.

Za ginipiggu: Akuma no jikken a.k.a. Guinea Pig.

Svona er henni lýst á imdb.com. Plot Summary: A group of guys capture a young girl with the intent of hurting her. They torture her in many ways,…
Stuttmynd, þessi lína segir allt sem segir þarf. Það eru til um sex myndir ef ekki fleiri í þessari seríu.

Salò o le 120 giornate di Sodoma a.k.a. The 120 Days of Sodom

Aftur tekið af imdb.com Plot Outline: Four fascist libertines round up 9 teenages boys and girls and subject them to 120 days of physical, mental and sexual torture.
Ég myndi aldrei vilja sjá þessa mynd. Þetta plot summary eitt er alveg nógu ógeðfellt.

Cannibal Ferox

Svona er smá úr söguþræðinum á þessari mynd “the two dealers and three grad students to the most horrific torture and murder for their crimes using their own harsh law of the jungle.”

Bloodsucking Freaks

Plot Outline: Sardu runs the theatre of the macabre. Sardu is into S&M. Sardu likes to kill people in public and make them think it's fake.
Þetta er seinasta myndin sem ég ætla að nefna. Ekki það að ég ætli eitthvað að dæma innihald þessarar myndar þá held ég að hún og hinar sem ég nefndi séu eingöngu gerðar til þess að hneyksla og gjörsamlega ganga fram af manni.

Ef einhver hefur séð þessar myndir þá má viðkomandi skrifa hvað honum/henni fannst um hana.