Joe Dirt Joe dirt er væntanleg í bíóhús hér á klakanum á næstuni og ég gaf mér tíma til og kíkti á hana um daginn. -Joe dirt fjallar um ævi “Joe dirt” (David Spade) í beinni merkingu þá segir hann frá hvernig hann ólst upp sem “white trash/trailer trash” krakki og það hvernig hann komst einn af seinna í þessum harða heimi. Joe dirt er með skrambi fyndnar senur á vissum tímabilum í myndini þó svo hún fái ekki góða dóma á imdb en svona myndir og vel má nefna Freddy got fingerd fá aldrei góða dóma á þannig síðum þannig að það er hlutur sem maður verður að líta fram hjá þegar að það kemur að svona dellu myndum. Ég skemmti mér bara nokkuð vel en get alls ekki lofað góðri mynd til ykkar hinna því það er mjög misjafnt hvað fólki finnst varðandi svona myndir. Alla vega ef þið farið ekki á hana í bíó eða heyrið eitthvað slæmt um hana þá endilega takið hana einhvern tíman á spólu.

David Spade …. Joe Dirt/Joe Dirte/Joe Nunnamaker
Brittany Daniel …. Brandy
Dennis Miller (I) …. Zander Kelly
Adam Beach …. Kicking Wing
Christopher Walken …. Clem
Jaime Pressly …. Jill Dirt
Kid Rock …. Robby